18 maí, 2007

Manikjúr

Settist niður með naglaþjalir, aceton og naglalakk. Ég fór nefnilega í handsnyrtingu fyrir viku síðan og ætla að halda þessu aðeins við.
Pússaði smá - en mundi þá eftir að þvottavélin var búin.
Ég labbaði fram í þvottahús - á leiðinni þangað sá ég að uppþvottavélin var líka búin svo ég breytti um stefnu.
Opnaði uppþvottavélina, gekk frá safapressunni og þurrkaði af borðum áður en ég hélt áfram leið minni í þvottahúsið (já, alla þessa leið).
Þvottavélin er staðsett á baðherberginu svo ég notaði tækifærið og pissaði og sá þá að klósettið var orðið óþarflega skítugt (fyrir konu sem er í fríi).
Þreif klósettið og tók aðeins til inni á baði áður en ég tók úr þvottavélinni.
Fór með þvottinn út á svalir og hengdi upp.
Rak þá augun í dósir og drasl á svölunum svo ég tók til þar.
Ég veit alveg afhverju ég er aldrei með naglalakk - ég finn mér alltaf eitthvað þarfara að gera. Fyrir nú utan að þau fáu skipti sem ég læt verða af því að smella á mig lakki, þá skemmi ég það yfirleitt með því gefa því ekki tíma til að þorna.
Marta - best ólökkuð!!

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Alveg týpískt!
Stundum ástæðan fyrir því að kona er lengi á klósettinu eða í sturtunni. Hún er sem sagt búin að þrífa klósettskálina og taka vaskinn áður en hún kemur fram!!!

Syngibjörg sagði...

Nú skil ég afhverju mér tekst aldrei að vera pæja með lakkaðar neglur....