07 ágúst, 2007

Klúkk

Ég hef verið tvíklukkuð, bæði af Rakel og Syngibjörgu. Ætla samt ekki að þreyta ykkur með sextán staðreyndum um mig, heldur reyni við átta:
  1. Í staðinn fyrir að fá mér aðra brauðsneið, gúffaði ég í mig tveim stykkjum af súkkulaðihúðuðu Oreo.
  2. ...samt er ég heilsufíkill og finnst best að borða grænmeti og fisk.
  3. Ég er í ljótum brúnum sokkum með málningarslettum.
  4. Mér finnst rauðvín gott.
  5. Börnin mín eru það fallegasta og besta sem á á.
  6. Þegar ég var lítil nagaði ég á mér táneglurnar, get það ekki lengur en velti því fyrir mér hvort það sé ástæðan fyrir skökku og skældu baki í dag???
  7. Ég þarf nauðsynlega að drekka rauðvín með Birgittu sem fyrst
  8. ...allt í einu eru Oreo kexin orðin 4 :)

Ætli það sé ekki bara best að klukka Birgittu, svo væri nú gaman að heyra frá Eitruðum Prjónum og Þresti - og bara þeim sem lesa þessa snilld!!

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hvað þýðir það? Að þú sért búin að klukka mig? Er ég'ann þá? Á ég að ná þér? Kem kannski bara og næ þér og rauðvínsglasinu á sömu stundu :).